Tix.is

Um viðburðinn
Verið hjartanlega velkomin í KakóRó í nýja Om setrinu í Reykjanesbæ þar sem við róum líkama, huga og sál með hugleiðslu, öndunaræfingum, tónferðalagi og slökun. Við drekkum 100% hreint kakó frá Guatemala til að dýpka hugleiðslu, ró og tengingu inn á við. Öll munum við síðan sofa eins og englabossar um nóttina. Bæði kynin eru velkomin og engin reynsla af hugleiðslu er nauðsynleg. 

KakóRó kostar 3900 krónur. Takmarkað pláss er í boði og því nauðsynlegt að kaupa miða fyrirfram. Ef einhverjar spurningar vakna er þér velkomið að hafa samband í gegnum tölvupóst á kamilla@kako.is. Om setrið er á Hafnarbraut 6 í Njarðvík.

Kakóið sem við drekkum kemur frá regnskógum Guatemala og er sannkölluð súperfæða. Cacao innheldur yfir 1000 virk efni, mesta magn magnesíum og andoxunarefna nokkurrar plöntu í heiminum, króm, theobromine, manganese, sink, kopar, járn, C vítamín, omega 6 fitusýrur, tryptophan, og serótónin svo eitthvað sé nefnt. Það inniheldur PEA, efni sem við framleiðum þegar við verðum ástfangin. PEA skerpir líka fókus og athygli. Anandamide, sem einnig er þekkt sem "the bliss chemical" hefur aðeins fundist í einni plöntu - Cacao.

KakóRó leiðir Kamilla Ingibergsdóttir yogakennari en hún hefur stundað yoga og hugleiðslu um árabil. Hún kynntist kakóinu frá Guatemala árið 2016 og hefur síðan notað það til að dýpka hugleiðslu og tengjast inn á við. Hún hefur haldið reglulegar kakóathafnir, kakóhugleiðslur og KakóRó í Ljósheimum, Jógastúdíó í Vesturbænum, yogasal Oddsson og víða fyrir einkahópa. 

Nokkur góð ráð fyrir KakóRó:
-Borðaðu bara léttan kvöldmat og helst nokkrum tímum áður en KakóRó byrjar. Það er líka í boði að fasta.
-Ekki er ráðlagt að drekka mikið kaffi sama dag og athöfnin fer fram.
-Klæðstu þægilegum fatnaði. Það eru dýnur, teppi og púðar á staðnum.
-Láttu mig vita ef þú tekur inn geð- eða hjartalyf og ég get ráðlagt hvort eða hversu mikið kakó gott er að drekka. 
-Komdu með opin hug og settu þér jafnvel ásetning ef það er eitthvað sem þú vilt vinna sérstaklega með.