Tix.is

Um viðburðinn

Lettnesku tónlistakonurnar Dr.Dzintra Erliha, píanó, og Emma Aleksandra Bandeniece, selló, halda tónleika í Hannesarholti, laugardaginn 17. mars kl. 15:00. Tilefnið er 100 ára afmæli sjálfstæðis Lettlands. Lettar gleyma því ekki að íslendingar voru fyrstir þjóða til að veita stuðning þegar Lettland lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum árið 1991, í tíð Jóns Baldvins Hannibalssonar sem utanríkisráðherra.

Þrátt fyrir ungan aldur hafa þær báðar, hvor á sínu sviði, skipað sér á bekk með bestu hljóðfæraleikurum Lettlands. Dr. Dzintra Erliha hefur m.a. unnið til fjölda verðlauna í alþjóðlegum píanósamkeppnum og Emma Aleksandra Bandeniece hefur spilað með helstu hljómsveitum Lettlands og spilar reglulega  fyrir utan heimalandið.

 Á efnisdagskránni verða aðalega verk eftir lettnesk tónskáld m.a. J. Medins, I. Ramins,  J.Ivanovs og L.Garuta, en Dr. Dzintra Erliha er doktor í tónsmíðum L.Garuta.