Tix.is

Um viðburðinn

Hljómsveitin Mezzoforte er að koma norður og fagnar 40 ára afmæli sveitarinnar á Græna Hattinum 18. Maí. Sveitin mun spila mörg af sínum þekktustu lögum fyrir Akureyringa eins og Garden Party, Midnight sun & Rockall. Mikið tónleikahald er framundan hjá Mezzo á norðurlöndunum, Englandi og Ungverjalandi svo þetta er magnað tækifæri að sjá strákana í sínu besta formi á sviðinu á Hattinum. Fram koma allir stofnmeðlimirnir fjórir, Eyþór Gunnarsson á hljómborð, Friðrik Karlsson á gítar, Gulli Briem á trommur og bassaleikarinn Jóhann Ásmundsson, ásamt sænska saxófónleikaranum Jonas Wall.