Tix.is

Um viðburðinn

Það verður sannkölluð handboltahátíð í Laugardalshöll dagana 8. – 11. mars.

Þá verður leikið til úrslita í Bikarkeppni HSÍ - Coca Cola Bikarnum.

Á fimmtudeginum 8. mars munu kvennaliðin mætast í undanúrslitum.
Kl. 17.15 – ÍBV - Fram
Kl. 19.30 – Haukar - KA/Þór

Á föstudeginum 9. mars leika svo karlaliðin sína undanúrslitaleiki.
Kl. 17.15 – Haukar - ÍBV
Kl. 19.30 – Selfoss - Fram

Laugardagurinn 10. mars verður svo aðalhátíðin þar sem úrslitaleikir í bæði kvenna og karla verða leiknir.
Kl. 13.30 Úrslitaleikur kvenna.
Kl. 16.00 Úrslitaleikur karla.

Á sunnudeginum 11. Mars verður leikið til úrslita í yngri flokkum 3. og 4. flokki karla og kvenna og hefst sú hátíð kl 09:00. Umgjörðin verður ekki síðri en hjá meistaraflokkum og má búast við flottum tilþrifum hjá handboltastjörnum framtíðarinnar.