Tix.is

Um viðburðinn

Gítarleikarar á heimsmælikvarða á árlegri gítarhátíð Bjössa Thor.

Martin Taylor og Ulf Wakenius eru meðal eftirsóttustu og fremstu gítarleikara sögunnar. Á síðasta ári héldu þeir tónleika út um allan heim og nú í september bætast þeir í hóp fjölmargra listamanna sem spila á hinni þekktu og vinsælu gítarhátíð Bjössa Thor. Það getur engin tónlistaráhugamaður látið þessa tónleika fram hjá sér fara.