Tix.is

Um viðburðinn

Rokkað kjaftæði með Dimmu á Græna Hattinum. Þann 27. apríl mun þungarokksveitin DIMMA blása til tónleika á einum magnaðasta tónleikastað heims, Græna hattinum á Akureyri. Þeir Dimmu piltar hafa löngum átt sínar mögnuðustu sviðsstundir á Hattinum og hafa jafnvel gengið svo langt að kalla staðinn sinn heimavöll, þó óþvegnir aðkomumenn séu. Nú ber þó nýrra við því tónleikarnir verða ekki alveg með heðfbundnu sniði. Á fyrri helmingi kvöldsins mun sveitin gerast skrafhreyfin mjög, því hnokkarnir munu segja sögur úr herbúðum sveitarinnar, ræða tilurð laganna, kjafta frá sniðugum atburðum og almennt séð reyna að vera fyndnir og hressir. Til þess að tryggja það að þetta fari ekki úr böndunum þá verður Rögnvaldur gáfaði sérlegur fundarstjóri, enn sá ku vera einn af efnilegustu ungu listamönnum á Akureyri og þó víðar væri leitað. Ekki mun þó allur fyrri hálfleikur fara í mas því nokkur vel valin lög munu fylgja með og lofa þessir svokölluðu tónlistarmenn því að vanda sig sérstaklega mikið við flutninginn. Eftir hlé verður enn boðið upp á nýmeti þótt gamalt sé, því þá taka við hefðbundnir tónleikar án allra málalenginga nema hvað að lögin á söngskránni verða þau lög af plötum Dimmu sem sjaldan fá að heyrast á tónleikum, lög sem alla jafna flokkast sem „hin lögin“. Það er því óhætt að lofa því að hér sé ansi hressandi kvöld í uppsiglingu, þó níðþungt og ógurlegt verði...