Tix.is

Um viðburðinn

Guðný Guðmundsdóttir heldur upp á sjötugsafmælið sitt með sinni eigin tónleikaröð árið 2018 þar sem hún mun flytja öll verk Mozarts fyrir píanó og fiðlu í Hljóðbergi Hannesarholts.

Tónleikarnir verða samtals tíu talsins og munu hinir ýmsu píanóleikarar ganga til liðs við Guðnýju, en þær Guðný og Jane hófu leikinn þann 28. janúar. Þessir tónleikar eru þeir áttundu í röðinni.

Tónleikarnir fara fram á síðasta sunnudegi hvers mánaðar í Hannesarholti og hefjast kl. 12:15. 

Einnig býðst að bóka helgardögurð (brunch) með afslætti í veitingastofum Hannesarholts á kr. 2500 í tengslum við tónleikana. Borðapantanir í síma 511-1904.

Næstu tónleikar í röðinni eru þessir:

  • 25.NÓVEMBER: Píanóleikari: Bjarni Frímann Bjarnason

Meira um tónleikaröðina, ásamt upplýsingum um flytjendur, má lesa á Facebook-viðburði tónleikaraðarinnar og á www.Hannesarholt.is