Tix.is

Um viðburðinn

Karlakór Eyjafjarðar ætlar að taka fyrir lög sem vinsæl voru í flutningi hljómsveita Ingimars og Finns Eydals í Sjallanum á Akureyri.

Klæða á lögin nýjum búningi og útsetja þau að nýju fyrir karlakór, ýmist með eða án hljómsveitar.

Fá á til liðs við hópinn valinkunna hljómlistarmenn sem þekkja til sögunnar sem og að fá ungt og upprennandi listafólk til að spreyta sig á verkefninu og leggja til sínar hugmyndir og áherslur í flutninginn. Heiðursgestir tónleikanna verða þau Helena Eyjólfsdóttir (ekkja Finns) landsþekkt söngkona í hljómsveitum Ingimars og Finns Eydals og Grímur Sigurðsson sem var lengi í hljómsveit Ingimars Eydals. Saga hljómsveitanna allt frá Atlantic til síðustu áranna í Sjallanum verður höfð til hliðsjónar og leitast við að horfa á hana í sinni víðustu og fjölbreytilegustu mynd. Gleymum m.a. ekki því að þótt að þeir bræður hafi verið hvað þekktastir fyrir danshljómsveitir sínar þá dunaði jazzinn undir, yfir og allt um kring. Ákveðið hefur verið að setja upp viðburð í Hofi sem snertir sem flesta fleti í þeirra listsköpun. Við færum staðinn í hátíðarbúning og sýnum myndir af ferli þeirra bræðra.

Kórinn er skipaður 36 áhugasöngvurum úr Eyjafjarðarsveit, Akureyri og nærsveitum. Hann hefur að skipa hljómsveit sem í eru: Valmar Väljaots, hljómsveitarstjóri, píanó, hljómborð, harmónikka og fiðla, Árni Ketill Friðriksson, trommur (spilaði með bæði Ingimar og Finni), Eiríkur Bóasson, bassi og Brynleifur Hallsson, gítar (spilaði með Ingimar og Finni). Stjórnandi kórsins er Guðlaugur Viktorsson og kynnir á tónleikunum verður Gestur Einar Jónasson.

Við bjóðum síðan ungum listamönnum þeim Hauki Gröndal klarinett- og saxafónleikara og Söru Blandon söngkonu að bætast í hópinn og setja sitt mark á flutninginn.

Eftir tónleikana ætlum við að slá upp dansleik í Hömrum og endurvekja gömlu Sjallastemminguna, þar munu að mestu leiti sömu tónlistarmenn halda uppi fjörinu fram eftir nóttu.