Tix.is

Um viðburðinn

Svanurinn segir frá afvegaleiddri níu ára stúlku sem er send í sveit um sumar til að vinna og þroskast, en verður í staðinn lykilþátttakandi í atburðarás sem hún skilur varla sjálf.

Myndin hefur farið sigurför á Alþjóðlegum kvikmyndahátíðum, var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto haustið 2017, var valin besta kvikmyndin á Kvikmyndahátíðinni í Kaíró auk þess sem Ása Helga vann verðlaun fyrir leikstjórn á Kolkata International Film Festival á Indlandi.