Tix.is

Um viðburðinn

Í Svörtum Fötum á Hard Rock Café Reykjavík 15. febrúar! Hljómsveitin Í Svörtum Fötum hendir upp geggjuðum tónleikum fimmtudagskvöldið 15. febrúar n.k. á HRC Reykjavík. Hljómsveitin er um þessar mundir að halda upp á 15 ára afmæli breiðskífunnar Í Svörtum Fötum sem seldist í bílförmum og innihélt smelli eins og Dag sem dimma nátt, Nakinn og Tímabil.

Langt er síðan Í svörtum fötum hélt tónleika á mölinni en bandið mun leika á tónleikum á Græna hattinum Akureyri 17. febrúar. Á tónleikunum munu strákarnir eldhressu fara yfir feril hljómsveitarinnar, leika þeirra þekktustu lög og gera allt vitlaust eins og þeirra er von og vísa. Ekki láta þennan stórviðburð fram hjá þér fara! Miðaverð kr. 2990.