Tix.is

Um viðburðinn

Listhópurinn Hlökk samanstendur af Ingibjörgu Ýri Skarphéðinsdóttur, Lilju Maríu Ásmundsdóttur og Ragnheiði Erlu Björnsdóttur. Hópurinn mun flytja ný verk fyrir hljóð- og ljósskúlptúrinn Huldu þar sem tónlist, myndlist og ritlist mætast. Hulda er strengjaharpa með innbyggðum ljósabúnaði sem stýrist af því hvernig spilað er á hljóðfærið. Þegar leikið er á skúlptúrinn fyllist rýmið umhverfis Huldu af hljóðum, munstrum og litum sem breytast í sífellu.

Efnisskrá / Program

Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir
Liljulög (2017) - i. andvarp 1’

Lilja María Ásmundsdóttir
Hulduheimar (2017) 9’

Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir
Liljulög (2017) - ii. duldr em eg þess 3’

Ragnheiður Erla Björnsdóttir
Bláblómamynstur og fáein huldublik (2017) 8’ 

Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir
Liljulög (2017) - iii. glerið í gegnum 2’

Ragnheiður Erla Björnsdóttir
Bláblómamynstur og fleiri huldublik (2017) 7’

Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir
Liljulög (2017) - iv. öll af ljósi fyllast 3’

Lilja María Ásmundsdóttir
Ómynd (2017) 5’

Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir
Liljulög (2017) - v. glóar þar sól 6’

Öll verk eru frumflutt / All works are premiered

Hlökk
Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir, Lilja María Ásmundsdóttir og Ragnheiður Erla Björnsdóttir kynntust er þær stunduðu nám við Listaháskóla Íslands. Þær hafa unnið að ýmsum verkefnum saman og stofnuðu meðal annars hljómsveitina Hlökk árið 2015 þar sem þær notuðust helst við íslensk þjóðlög, spuna og eigin tónsmíðar við gömul ljóð. Nú hefur hljómsveitin þróast yfir í listhópinn Hlökk þar sem þær nýta eiginleika mismunandi listgreina, þá helst tónlistar, myndlistar og ritlistar, til að skapa ný verk. Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir, Lilja María Ásmundsdóttir and Ragnheiður Erla Björnsdóttir met during their studies at the Iceland Academy of the Arts. They formed the ensemble Hlökk in the year 2015 and started out by performing Icelandic folk songs, improvisations and their own compositions along with old poetry. Now the ensemble has developed into the art collective Hlökk where they use different types of art forms, mainly music, visual arts and creative writing, to create new compositions.