Tix.is

Um viðburðinn

Sérstakur gestur: Emilíana Torrini

Lord of the Rings- The Two Towers

Úrvalssæti kr 16.990
Svæði A kr 13.990
Svæði B kr 10.990
Svæði C kr 8.990
Svæði D kr 5.990 (skert sjónlína á tjald, þó aldrei meira en 20%)

Óskarsverðlaunamyndin Lord of the Rings – The Two Towers–  (Hringadróttinssaga – Tveggja turna tal) verður sýnd í fullri lengd í
Eldborgarsal Hörpu ásamt stórri sinfóníuhljómsveit, einsöngvurum og kórum. Tónlist og söngur myndarinnar, eftir eitt virtasta kvikmyndatónskáld samtímans – Howard Shore– verður flutt lifandi undir þessari frábæru kvikmynd – sem af mörgum er talin vera eitt besta verk kvikmyndasögunnar.  Þess má geta að tónlistin í kvikmyndinni hefur fengið
fjölda verðlauna. Alls verða yfir 230 manns á sviði Eldborgar sem gerir þessa sýningu að einum stærsta viðburði sem haldinn hefur verið í Hörpu. Sérstakur gestur verður Emilíana Torrini en hún syngur lagið sem hún samdi og flutti í The Two Towers- Gollum’s Song.

Hringadróttinssaga: Tveggja turna tal

Tónlist tónskáldsins Howard Shore við fyrsta hluta Hringadróttinssögu, Föruneyti hringsins, opnaði fyrir áhorfendum stórbrotið ævintýri J.R.R. Tolkiens, Miðgarð og fjölbreytilega menningarheima. Í öðrum hluta þríleiksins, Tveggja turna tali, vofa ógnvænlegir skuggar Mordor yfir og færast í aukana þegar Sauron reynir að tryggja sér Hringinn eina.

Tveggja turna tal hefst eftir að Föruneyti hringsins hefur leyst upp í þrjá hópa. Þrátt fyrir þá ógæfu eru ólíkir menningarheimar Miðgarðs farnir að þétta raðirnar og viðtekin stéttaskipting tekin að leysast upp þegar frjálsbornir menn fylkja liði til að bregðast við vaxandi mætti Saurons myrkradróttins. Tónlistin í Tveggja turna tali er að sama skapi flóknari heldur en í Föruneyti hringsins. „Föruneyti hringsins endar með því að föruneytið leysist upp,“ segir Shore. „Tveggja turna tal fylgir þessum þremur brotum föruneytisins eftir í jafnmörgum aðgreindum sögum“.

Í Tveggja turna tali þróar Shore áfram einkennisstefin sem voru í Föruneyti hringsins og kynnir til sögunnar nýjar persónur og menningarheima – en leggur áherslu á tengsl einstaklinga sem standa frammi fyrir sífellt flóknari ógn sem steðjar að Miðgarði. Temu Héraðsins berast þannig með Káti og Pípinni inn í Fangornskóg, þar sem þau blandast við óblíða tónlist Entanna. Entarnir tengjast hreinsandi bylgjum í tónverkinu Endurheimt náttúrunnar, en þar er hreinleikinn túlkaður með sópran drengjarödd – sömu rödd og lokkar til sín fórnarlömbin í Ginningu Hringsins. Megineinkennisstef Hringsins eina, Saga Hringsins, blandast saman við Eymd Gollris meðan þessi aumkunarverða skepna fylgir Fróða og Sóma – ásamt Djásninu – stöðugt nær Mordor. Víggirtur turn Saurons gnæfir upp við sjóndeildarhringinn og æsir upp tónlistartema Ísarngerðis sem ryðst inní lúðraþyt Róhan – riddaranna. Listilega ofinn tónavefur Róhan – riddaranna fær óvænt öflugan liðsauka: Föruneytisstefið, sem stendur núna fyrir laskaðan liðsafla Manna, Álfa, Dverga og Vitka. Og þannig viðhaldast venslin, tónlistarheimar hringast og fléttast saman sem skapar sífellt stærri tengd stef. En í fjarska magnast skuggar Mordors og nálgast Miðgarð óðfluga...

Doug Adams

Doug Adams er tónlistarmaður og rithöfundur. Hann er höfundur bókarinnar The Music of the Lord of the Rings Films.

Athugið myndin er ekki við hæfi barna undir 12 ára aldri

Tónskáldið Howard Shore
Howard Shore er í hópi virtustu og mikilvirkustu tónskálda og tónlistarstjórnenda og einnig meðal þeirra, sem oftast hafa verið verðlaunaðir fyrir afrek sín. Tónsmíðar hans við kvikmyndaþríleik Peters Jackson upp úr Hringadróttinssögu, eða „Lord of the Rings“ verða þó að teljast hátindurinn á ferli hans til þessa og fyrir þær hlaut hann þrenn Óskarsverðlaun. Honum hafa einnig hlotnast Grammy-verðlaunin þrisvar sinnum og fjórum sinnum hefur hann unnið til Golden Globe-verðlauna. Shore var í hópi þeirra sem upphaflega sköpuðu „Saturday Night Live“ skemmtiþáttinn. Hann var tónlistarstjórnandi þáttanna frá 1975 til 1980. Á þessum tíma hóf hann einnig að starfa með David Cronenberg og samdi tónlistina við 14 af kvikmyndum hans, þeirra á meðal Cosmopolis (2012), The Fly, Crash og Naded Lunch. Honum hlotnuðust Genie-verðlaunin fyrir frumsamda tónlist við myndirnar A Dangerous Method, Eastern Promises og Dead Ringers. Tónsmíðar hans ná yfir vítt svið og nefna má svo ólíkar kvikmyndir sem The Departed, The Aviator, Gangs of New York, Philadelphia, Mrs Doubtfire og The Silence of the Lambs eða Hugo eftir Martin Scorsese.

Tónlist Howards Shore hefur verið flutt á hljómleikum víða um heim. Árið 2003 stjórnaði hann sinfóníuhljómsveit Nýja-Sjálands ásamt kór við frumflutning á The Lord of the Rings-sinfóníunni í Wellington. Síðan hafa ýmsar af þekktustu sinfóníuhljómsveitum heims flutt þetta verk á alls meira en 140 hljómleikum.

Árið 2008 var óperan The Fly eftir Howard Shore frumflutt í Chatelet-leikhúsinu í París og Óperunni í Los Angeles. Hann hefur einnig samið fjölda annarra verka, m.a. píanó- og sellókonserta. Meðal nýjustu afreka hans má nefna tónlistina við Hobbitann og nú vinnur hann að gerð nýrrar óperu.

Howard Shore hefur auk alls annars verið verðlaunaður sérstaklega fyrir ævistarf sitt á sviði kvikmyndatónlistar og hann hefur einnig verið sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við tvo háskóla, auk þess honum hafa verið veittar sérstakar heiðursviðurkenningar bæði í Frakklandi og Kanada.

Umsjón: Tónleikur ehf