Tix.is

Um viðburðinn

Íslenska kvennalandsliðið hefur leik í undankeppni EM, EuroBasket Women 2019, með heimaleik gegn Svartfjallalandi. Í undankeppninni leikur Ísland í riðli með landsliðum Slóvakíu, Svartfjallalands og Bosníu þar sem leikið er heima og að heiman í nóvember og svo í febrúar og nóvember 2018. Landslið Svartfjallalands er sterkt og léku þær á lokamóti EM kvenna 2017 í sumar.

Okkar stelpur hafa sýnt að þær geta unnið hvaða lið sem er á heimavelli með góðum stuðningi. Mætum í Höllina og styðjum stelpurnar til sigurs!