Óperan, sem er fyrsta ópera tónskáldsins, var frumsýnd 16. ágúst
2017 í Musikhuset í Árósum og hlaut frábærar viðtökur áheyrenda og einróma lof
gagnrýnenda. Leikstjóri uppfærslunnar er Kasper Holten sem lét nýverið af
störfum sem óperustjóri Covent Garden. Um er að ræða sömu uppfærslu en
flytjendur í Eldborg verða flestir íslenskir.
„Það er vel við hæfi að á 100 ára fullveldisafmæli Íslands sé sett upp glæsilegt íslenskt/ danskt samstarfsverkefni sem þetta, enda stór viðburður í okkar tónlistarsögu. Þarna er um magnað verk og stórbrotna uppfærslu að ræða sem verður virkilega spennandi að geta boðið Íslenskum áhorfendum að njóta næsta vor“ segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir óperustjóri Íslensku óperunnar.