Tix.is

Um viðburðinn
Til og með 31.janúar 2018 eru allir miðar með 20% afslætti

Íslenska óperan mun sýna óperuna Brothers eftir Daníel Bjarnason í samstarfi við Den Jyske Opera og Sinfóníuhljómsveit Íslands á Listahátíð 2018. 

Óperan, sem er fyrsta ópera tónskáldsins, var frumsýnd 16. ágúst 2017 í Musikhuset í Árósum og hlaut frábærar viðtökur áheyrenda og einróma lof gagnrýnenda. Leikstjóri uppfærslunnar er Kasper Holten sem lét nýverið af störfum sem óperustjóri Covent Garden.  Um er að ræða sömu uppfærslu en flytjendur í Eldborg verða flestir íslenskir.

 „Það er vel við hæfi að á 100 ára fullveldisafmæli Íslands sé sett upp glæsilegt íslenskt/ danskt samstarfsverkefni sem þetta, enda stór viðburður í okkar tónlistarsögu. Þarna er um magnað verk og stórbrotna uppfærslu að ræða sem verður virkilega spennandi að geta boðið Íslenskum áhorfendum að njóta næsta vor“ segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir óperustjóri Íslensku óperunnar.