Tix.is

Um viðburðinn

Tilraunakennt erindi gjörningur í Tjarnarbíó 

Sunnudaginn 8. október kl. 20.00 - 21:00

Sequences myndlistarhátíð kynnir með stolti og ánægju einstakan gjörning eftir bandarísku myndlistarkonuna Joan Jonas, í samstarfi við íslenska tónskáldið Maríu Huld Markan.

Jonas (f. 1936, New York) er frumkvöðull á sviði vídeólistar. Síðan á sjötta áratugnum hefur hún skapað nýstárleg verk í ólíkum miðlum sem rannsaka tímatengt skipulag og pólitískt mikilvægi áhorfandans. Í verkum sínum blandar Jonas saman ólíkum miðlum og listformum, líkt og leikhúsi, dansi, hljóði, texta, teikningum, skúlptúr, vídeó og myndvörpun. Í nýrri vídeóverkum, gjörningum og innsetningum hefur Jonas gjarnan starfað með tónlistarmönnum og dönsurum, ásamt því að leita til bókmennta og goðsagna í marglaga rannsóknarvinnu sinni. 

María Huld Markan Sigfúsdóttir (f. 1980) fiðluleikari og tónskáld hefur farið um víðan völl tónlistarinnar. Hún útskrifaðist frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 2000 og frá Listaháskóla Íslands með BA-gráðu í tónsmíðum árið 2007. Auk þess að sinna tónsmíðum hefur María Huld verið meðlimur í hljómsveitinni amiinu til margra ára og með henni ferðast heimshorna á milli og flutt tónlist í ýmsum myndum.

Joan Jonas er jafnframt heiðurslistamaður Sequences VIII sem fer fram í áttunda sinn víðsvegar um Reykjavík. Auk verks síns í Tjarnarbíó opnar Jonas Does the Mirror Make the Picture, yfirgripsmikla sýningu í Nýlistasafninu á úrval verka frá mismunandi tímabilum ferils hennar. Sýning Jonas í Nýlistasafninu opnar föstudaginn 6. október á fyrsta degi hátíðarinnar og stendur til 10. desember 2017. 

Sequences myndlistarhátíð er tíu daga tvíæringur sem haldin er í Reykjavík dagana 6.–15. október 2017. Hún er nú haldin í 8. skipti en markmið hátíðarinnar er að sýna framsækna myndlist með áherslu á tímatengda miðla; gjörninga, hljóðverk, vídeólist og myndlist í almenningsrými. Sýningarstjóri Sequences VIII er Margot Norton, sýningarstjóri við New Museum í New York og býður hátíðin upp á framúrskarandi úrval verka eftir ýmsa listamenn og tónlistarmenn.

 

Fyrir frekari upplýsingar um hátíðina og dagskrá, sjá www.sequences.is


Með leyfi listamannsins og Gavin Brown Enterprise, New York / Róm