Pasi "Sleeping" Myllymäki er finnskur kvikmyndagerðarmaður þekktur fyrir óhefðbundnar stuttmyndir úr neðanjarðar- og pönk senunni. Myllymäki útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Lahti Institute of Fine Arts and Design árið 1976. Vegna áhrifa frá þeirri hugmynd pönksins að skapa eitthvað á eigin vegum hóf hann að búa til stuttmyndir á súper 8 filmu ásamt kvikmyndatökumanninum Risto Laakkonen. Á árunum 1976-85 framleiddu þeir hátt í 50 stuttmyndir. Neðanjarðarstuttmyndir Myllymäkis hafa meðan annar verið sýndar á Image Forum Film Festivalí Japand og á Feneyja tvíæringnum árið 2017.