Tix.is

Um viðburðinn

DAGSKRÁ KVÖLDSINS: 
19:30 -   Salur opnar 
20:00 -  Sýning hefst 
21:40 -   Hlé 
22:00 -  Sýning hefst aftur 
22:40 -  Áætlaður endir* 
* Dagskráin getur riðlast og er birt með fyrirvara.

Þegar Tommy Tiernan stígur á svið er það líkt og að fá leiðbeiningar frá fjarlægri stjörnu; maður má bara ekki taka því of alvarlega. Hann leggur allt sem er pólitískt og persónulegt í sölurnar því eina markmið kvöldsins er hlátur. Leyfum okkur að hlæja að eigin óförum og kærum okkur kollótt um lífsins vandamál á Under the Influence með Tommy Tiernan í Silfurbergi, Hörpu, föstudaginn 20. október.

Láttu leiða þig áfram af þessum réttindalausa uppistandara sem uppfyllir engin skilyrði um eitt né neitt og getur ekki boðið upp á annað en hálfúthugsuðar pælingar. Hann er frábær á sviði, elskar tungumál og er með stóran kjaft. Er honum treystandi? Til að vera kjáni, já. Til að haga sér, nei. Líkt og umferðarstjóri sem stendur frammi fyrir sinfóníuhljómsveit með skeið í annarri hendinni og þokulúður í hinni ... Hvað gæti mögulega farið úrskeiðis?

„Tommy Tiernan reif í sundur og stal senunni með vandræðalega fyndnum frásögnum sem reyndu á þolrifin.“ – The Irish Times

„Andleg göfgi einkennir Tiernan og lætur hann skara fram úr. Missir kirkjunnar er fengur grínsins.“ – The Standard

„Ótvíræður máttur kómedíunnar“ – The Guardian

Um eitt verðsvæði er að ræða og kostar miðinn 5.990 kr. Aðeins tæplega 500 miðar eru í boði í heildina.

Umsjón: Sena Live