Tix.is

Um viðburðinn

Leikhúslistakonur 50+ kynna leikritið Unu, sem er spennandi og áhrifaríkt leikrit eftir Huldu Ólafsdóttur. Það verður leiklesið í Iðnó laugardaginn 2. september kl 16:00 og mánudaginn 4. september kl 20:00.

Þrjár kynslóðir mætast og horfast í augu við leyndarmál sem legið hafa undir sléttu og hamingjuríku yfirborði áratugum saman. Ekki er allt sem sýnist!

Persónur og leikendur:
Una - Þórunn Magnea Magnúsdóttir
Dísa - Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
Lilja - Bryndís Petra Bragadóttir
Thelma - Hreindís Ylfa Garðarsdóttir Holm
Leikstjóri - Hulda Ólafsdóttir