Tix.is

Um viðburðinn

Íslenski dansflokkurinn frumsýnir nýtt dansverk eftir Anton Lachky í Borgarleikhúsinu í apríl 2018. Anton Lackhy er einn af stofnendum Les SlovaKs Dance Collective sem farið hefur víða um heim síðustu ár og sýndi m.a. verkið Opening Night á Listahátíð í Reykjavík 2011. Anton hefur samið dansverk fyrir Gautaborgarballettinn, Feneyjartvíæringinn og Scottish Dance Theatre. Lachky snýr hér aftur til Íslenska dansflokksins en verk hans Fullkominn dagur til drauma sló eftirminnilega í gegn árið 2011 og færði honum Grímuverðlaunin í flokknum Danshöfundur ársins 2012.

Fjórar stjörnur!

„Einfalt verk, skapað utan um færni dansaranna sjálfra, vel unnið og skemmtilegt. Ef mann langar að hlæja á danssýningu þá er Fullkominn dagur til drauma svarið“ – SGM Fréttablaðið um Fullkominn dagur til drauma.