Tix.is

Um viðburðinn

Fólk, staðir, hlutir - Frumsýnt í apríl 2018

Leikkonan Emma er alkóhólisti og lyfjafíkill sem eftir hneykslanlegt atvik á leiksviðinu fellst loks á að fara í afvötnum á meðferðarstofnun. Á yfirborðinu virðist hún öll af vilja gerð til að takast á við vandamálið en undir niðri kraumar harðsvíraður fíkill sem ekkert er heilagt. Í ofanálag er Emma eiturklár og meinfyndin og velgir því meðferðarfulltrúum sínum verulega undir uggum. Fíkillinn er meistari í lygum og áhorfandanum er kippt með inn í ferðalag þar sem engin leið er að átta sig á hvað er satt og hvað logið.

Nýtt leikrit eftir breska leikskáldið og leikstjórann Duncan Macmillan sem gekk fyrir fullu húsi á West End í London árið 2015. Verkið er nístandi lýsing á meðferð frá upphafi til enda. Aðalpersónan gengur í gegnum allar þær vítiskvalir sem slíkri meðferð fylgir þar til hún smám saman nær tökum á lífi sínu. Efniviðurinn stendur mörgum nærri þar sem fjallað er um fíknarmeðferð á nýstárlegan, áhrifamikinn en um leið grátbroslegan hátt. Um leið er þessari áleitnu spurningu varpað fram: Komumst við vímulaus af í þessum geggjaða heimi?

Verðlaunaleikhópurinn Vesturport undir stjórn Gísla Arnar Garðarssonar og Borgarleikhúsið sameina aftur krafta sína eftir sérlega vel heppnaða sýningu á Elly sem gekk fyrir fullu húsi á síðasta leikári.