Tix.is

Um viðburðinn

Framhjá rauða húsinu og niður stigann er byggt á þremur frumsömdum einleikjum sem eru fléttaðir saman til að mynda sérstæða heild. Heildarmyndin gefur svo betra samhengi fyrir þær sögur sem sagðar eru.

Verkið fjallar um þrjá ófullkomna einstaklinga sem allir reyna að fóta sig í fallvöltum heimi og tekst það misvel. Persónurnar standa allar fyrir taumlausa einstaklingshyggju og önnur einkenni sem við þekkjum öll í sjálfum okkur og öðrum. Ein persónan er þjökuð af útlitsdýrkun og lágu sjálfsmati, ein heldur að öll vandamál heimsins leysist með samfélagsmiðlum og skyndilausnum og sú síðasta er hrokagikkur sem reynir að upphefja sjálfa sig á kostnað annarra. Verkið sýnir varhugaverð vestræn gildi nútímans í spéspegli og gegnumgangandi er fyrsta flokks húmor og fyrsta heims harmur.

Verkefnið er sett upp af nýstofnaða atvinnuleikhópnum Umskiptingum, og er liður í fyrsta starfsári þeirra. Umskiptingar samanstanda af ungu, menntuðu sviðslistafólki á Norðurlandi eystra, þeim Birnu Pétursdóttur, Jennýju Láru Arnórsdóttur, Margréti Sverrisdóttur, Sesselíu Ólafsdóttur og Vilhjálmi B. Bragasyni. Þetta verður fyrsta verk hópsins, en verkið var nýlega skrifað af þremur meðlimum hópsins og því er um nýtt íslenskt verk að ræða.

Verkið verður frumsýnt þann 24. ágúst næstkomandi og fara sýningar fram í Hlöðunni á Akureyri. Miðapantanir á tix.is.

Hópurinn að baki sýningarinnar:
Leikarar og höfundar: Birna Pétursdóttir
Sesselía Ólafsdóttir
Vilhjálmur B. Bragason
Leikstjóri: Margrét Sverrisdóttir
Tónskáld: Axel Ingi Árnason
Leikmynda- og búningahönnuður: Eva Björg Harðardóttir
Framleiðandi: Jenný Lára Arnórsdóttir
Ljós og hljóð: Jóhann Pétur Aðalsteinsson
Hönnun leikskrár og plakats: Heiðdís Halla Bjarnadóttir

Sýningartímar
Frumsýning fimmtudaginn 24.ágúst kl. 20:00
2.sýning fimmtudaginn 31.ágúst kl. 20:00
3.sýning laugardaginn 2.september kl. 20:00