Tix.is

Um viðburðinn

Það eru liðin 20 ár frá því að hljómsveitinni Gamma Ray, sem stofnuð var í Palm Desert í Kailfoníu-fylki í Bandaríkjunum, var gert að skipta um nafn eða eiga yfir höfði sér málsókn frá Hamburg í Þýskalandi (nánar um það síðar….).

Hljómsveitin Queens of The Stone Age, leidd af hinum litríka Joshua Homme, hefur gefið út sex hljóðversplötur auk þess sem sú sjöunda, “Villains” er væntanleg þann 25.agúst á þessu ári.

Queens of The Stone Age heimsótti Ísland árið 2005 og hélt tónleika í Egilshöll ásamt vinum sínum í hljómsveitinni Foo Fighters en einn söngvari sveitarinnar, Mark Lanegan, sem komst ekki með árið 2005, hélt tvenna tónleika í Fríkirkjunni árið 2013. Ásamt Lanegan hafa meðlimir sveitarinnar talið á um annan tug þekktra tónlistarmanna en þar ber einna helst að nefna Dave Grohl, Nick Olivieri og Joey Castillo. Núverandi meðlimir (auk Homme) eru þeir Troy Van Leeuwen, Jon Theodore, Michael Shuman og Dean Fertita.

Til heiðurs og í tilefni tvítugsafmælis þessarar mögnuðu sveitar, ætlar hópur íslenskra tónlistarmanna að taka sig saman og flytja allt það besta sem sveitin hefur gefið út síðustu tuttugu árin. Hátt, hrátt og með sóma.

Tónleikarnir fara fram á Gauknum, Tryggvagötu 22 í Reykjavík laugardaginn 21.október kl. 22.00 en húsið opnar 21.00.

Hljómsveit kvöldsins:
Birkir Rafn Gíslason - Gítar
Daníel Hjálmtýsson - Söngur/Misc.
Helgi Rúnar Gunnarsson - Gítar
Hálfdán Árnason - Bassi
Ragnar Ólafsson - Hljómborð/raddir/gítar 
Skúli Gíslason - Trommur

Facebook