Tix.is

Um viðburðinn

Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar er 15 ára um þessar mundir og langar okkur að slá til hátíðar laugardaginn 12. ágúst. Hátíðin verður haldin á akstursíþróttasvæði AÍH og munu allar deildir félagsins sýna hvað býr í hverri deild.

Það okkur einnig heiður að tilkynna að sérstakur gestur á hátíðinni er stórstjarna drift heimsins og margfaldur og núverandi heims og ameríku Formula drift meistarinn Chris Forsberg, en hann mun loka kvöldinu með driftsýningu sem ENGINN má missa af!

Dagskrá:

Svæðið opnar klukkan 15:00
15:30 - Gokartdeild AÍH sýnir bíla sína og keyrir nokkra hringi ásamt því að svokölluð drift þríhjól verða til sýnis í pitt.
16:30 - Rallycrossdeild AÍH tekur svo við og spænir upp mölina, einnig verða bílar deildarinnar til sýnis í pitt.
18:00 - Driftdeild AÍH strikar svo brautina þar sem allir flokkar driftsins munu sýna listir sínar.
19:00 - Chris Forsberg lýkur svo kvöldinu með ógleymanlegri drifsýningu!

Miðaverð á afmælishátíðna eru litlar 2.500.- krónur í forsölu og verður opnað fyrir miðasölu innan skamms.

Miðaverð eftir að forsölu líkur er 2.900.- krónur, einnig verður miðasala í hliði.

Miðaverð fyrir félagsmenn AÍH er 2.000.- krónur.

DDA búðin verður á sínum stað með rjúkandi heitar pizzur, gos, sælgæti og varning tengdann DDA