Ég og minn bipolar bróðir
Leikritið er nýtt verk eftir Tómas Gauta Jóhannsson sem leikur jafnframt annað aðalhlutverkið ásamt Gissuri Ara Kristinssyni.
Verkið fjallar um eineggja tvíburana Jakob (Tómas) og Pétur (Gissur) og þeirra lífsbaráttu þegar annar þeirra greinist með geðhvarfasýki.
Þeir verða svart og hvítt og margar hindranir standa fyrir þeim á hinu félagslega og andlega líferni.
"Það er einmanalegt að missa bróður sinn. Hlutur af mér sem fór í burtu og kemur aldrei til baka."
Sýnt í Félagsheimili Seltjarnessbæjar að Suðurströnd.
Persónur & leikendur
Jakob Bergmann: Tómas Gauti Jóhannsson
Pétur Bergmann: Gissur Ari Kristinsson
Leikstjórn og umgjörð: Níels Thibaud Girerd
Höfundur: Tómas Gauti Jóhannsson
Framkvæmdarstjóri: Guðmundur Ari Sigurjónsson
Sýningarstjóri : Bára Lind Þórarinsdóttir
Sviðsstjóri og aðstoðarmaður leikstjóra: Þóra Birgir Bernódusdóttir
Tónlist: Friðrik Guðmundsson ásamt ýmsum
Danshöfundur: Elísabet Skagfjörð
Graffík: Arnaldur Bragi Jakobsson