Tix.is

Um viðburðinn

Ferðin til Valhallar – Stórsveit Reykjavíkur

Sérstakur gestur Steen Hansen

Steen Nikolaj Hansen er leiðandi básúnuleikari í hinni frábæru Stórsveit danska ríkisútvarpsins í Kaupmannahöfn; Danmarks Radio Big Band. Auk þess stjórnar hann hljómsveitinni reglulega. Flutt verður verk hans Ferðin til Valhallar. Þar segir í kyngimögnuðum tónum frá helstu persónum hinnar norrænu goðafræði; Óðni, Þór, Loka, Freyju og fleirum. Steen Hansen stjórnar.

· 10% afsláttur fyrir eldriborgara, öryrkja og námsmenn. Aðeins afgreitt í miðasölu Hörpu.

· Ef keyptir eru miðar á a.m.k þrenna tónleika í einu fæst 20% afsláttur. Aðeins afgreitt í miðasölu Hörpu.