Tix.is

Um viðburðinn

Gói endurnýjar frábærlega vel heppnuð kynni af Stórsveit Reykjavíkur frá undanförnum tveimur árum. Að þessu sinni ætlar Gói að taka á móti gestum í spjall, sprell og söng. Gestir hans í ár verða Laddi, Ragnheiður Gröndal og krakkar úr forskóla Tónlistarskólans í Grafarvogi undir handleiðslu Ingibjargar Fríðu Helgadóttur. Svo er aldrei að vita nema jólasveinninn stelist til byggða og líti við með tilheyrandi fjörugheitum og glensgalsa. Efnisskráin sem er klukkutíma löng er samsett af léttum og skemmtilegum jólalögum í fjörugum útsetningum. Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

<ð>Einsöngvari og kynnir: Gói. Gestir: Laddi, Ragnheiður Gröndal, krakkar úr forskóla Tónlistarskólans í Grafarvogi. Stjórnandi og útsetjari: Haukur Gröndal.

· 10% afsláttur fyrir eldriborgara, öryrkja og námsmenn. Aðeins afgreitt í miðasölu Hörpu.
· Ef keyptir eru miðar á a.m.k þrenna tónleika í einu fæst 20% afsláttur. Aðeins afgreitt í miðasölu Hörpu.