Tix.is

Um viðburðinn

Tveir af ástsælustu söngvurum landsins, þau Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson, taka aftur höndum saman og slá upp tónleikum á Græna Hattinum 27.júlí nk.

Þau Sigríði Thorlacius og Sigurð Guðmundsson þarf vart að kynna en þau hafa lengi verið á meðal þekktustu og dáðustu söngvara landsins. Bæði hafa þau gert garðinn frægan með hljómsveitum sínum, Sigríður með Hjaltalín og Sigurður með Hjálmum, en jafnframt státa þau af glæstum sólóferlum.