Tix.is

Um viðburðinn

Emmsjé Gauti ætti ekki að hafa farið framhjá nokkrum manni síðustu mánuði. Hvert topplagið á fætur öðru gefa til kynna að hann er einn af virkustu og vinsælustu tónlistarmönnum landsins um þessar mundir en fimm verðlaun á íslensku tónlistarverðlaununum í febrúar eru því til staðfestingar. Síðast þegar Gauti spilaði á Græna Hattinum var fullt út af dyrum og er hlakkar mikið í drengjum að koma aftur norður. Flestir sem hafa farið á tónleika með Gauta vita hversu kraftmikill hann er á sviði og verður engin breyting í þetta skiptið. Ekki láta þig vanta!