Tix.is

Um viðburðinn

Rapptvíeykið Úlfur Úlfur hefur verið ein vinsælasta hip-hop hljómsveit landsins síðustu ár og ættu því að vera flestum kunnugir. Eftir vel heppnaða útgáfu plötu þeirra ‘Tvær plánetur’ árið 2015 hafa drengirnir verið ansi sýnilegir í íslenskri, og nú nýverið evrópskri tónlistarflóru og hafa verið iðnir við tónleikahald. Veturinn 2016 lokuðu þeir sig af við skriftir og út varð nýjasta plata þeirra ‘Hefnið okkar’ sem kom út nýverið. Sú hefur fengið afbragðs viðtökur og fyrirhugaður er íslandstúr í sumar og mánaðarlangur evróputúr í kjölfarið. Strákarnir koma fram á Græna hattinum þann 14.júlí og búast má við algjörri veislu fyrir augu og eyru.