Magnús og Jóhann ásamt hljómsveit verða með
sannkallaða stórtónleika í Bæjarbíói 21. október n.k. Hjlómsveitarstjóri
er Börkur Hrafn Birgisson kenndur við Jagúar og Benzin music. Á dagskránni
verður samantekt af bestu lögum þeirra. Það vita ekki allir en þeir eiga
aragrúa af lögum sem lifað hafa með þjóðinni í flutningi þeirra sem og annara
listamanna. TIl gamans má nefna brot af lögunum
-Álfar
-Söknuður
-Blue Jean Queen
-Jörðin sem ég ann
-Í Reykjavíkurborg
-Þú átt mig ein
Í ár eru einmitt 45 ár síðan fyrsta plata
þeirra kom út. Grípum hér niður í ágrip af sögu þessara frábæru listamanna:
"Leiðir Magnúsar Þórs Sigmundssonar og
Jóhanns Helgasonar lágu fyrst saman í hljómsveitinni Nesmenn en Jóhann hafði
áður verið með Rofum. Þegar Nesmenn gáfust upp árið 1968 héldu þeir félagar
samstarfinu áfram fyrst með rafmagnsgítarana sína en skiptu... þeim fljótlega
út fyrir kassagítara.
Þeir Magnús og Jóhann náðu samningi við
Fálkann, héldu í hljóðver og tóku upp eigin lagasmíðar og texta sem allir voru
á enskri tungu. Samningurinn við Fálkann klikkaði og kom fyrsta plata þeirra
Magnúsar og Jóhanns því ekki út fyrr en um haustið 1972 á útgáfumerkinu
Scorpion. Lagið Mary Jane náði vinsældum og hefur haldið uppi merki plötunnar
síðan.
Seinna varð hljómsveitin Change til og undir
þeim fána störfuðu þeir báðir að mestu á árunum 1973-1975. Eftir að sveitin
lagði upp laupana fyrir jólin 1975 héldu þeir Magnús og Jóhann hvor í sína
áttina. Magnús Þór hóf sjálfstæðan feril og sendi frá sér nokkrar plötur á
næstu árum. Meðal annarra hina mögnuðu plötu Álfar. Jóhann sinnti einnig
sólóferli og lagasmíðum, auk þess að verða helmingur dúettsins Þú og ég.
Eftir þá félaga liggja fjölmörg lög sem eru
stór hluti af íslenskri dægurlagasögu, lög eins og Ást, Söknuður, Dag sem dimma
nátt, Yakety Yak, Þú átt mig ein, Blue Jean Queen, Mary Jane, Seinna meir,
She's Done it Again, Ísland er land þitt o.fl, en mörg þessara laga hafa þeir
aldrei flutt sjálfir."