Tix.is

Um viðburðinn

Calder-strengjakvartettinn kammertónleikar

Kammertónleikar í Norðurljósum

8. okt. » 17:00 Norðurljós | Harpa

                       

Calder-strengjakvartettinn

Benjamin Jacobson fiðla

Andrew Bulbrook fiðla

Jonathan Moerschel víóla

Eric Byers selló

                

EFNISSKRÁ

Franz Schubert Strengjakvartett í d-moll, Dauðinn og stúlkan

Esa-Pekka Salonen Homunculus

Daníel Bjarnason Stillshot

Andrew Norman Stop Motion

Calder-strengjakvartetinn er einn fremsti strengjakvartett Bandaríkjanna og hlaut hin virtu Avery Fisher-verðlaun árið 2014. Á efnisskránni í Norðurljósum verður tónlist eftir tvo höfunda sem búsettir eru í Los Angeles, hljómsveitarstjórann heimsfræga Esa-Pekka Salonen og bandaríska tónskáldið Andrew Norman sem vakið hefur mikla athygli undanfarin ár. Hann fékk viðurkenninguna „tónskáld ársins 2016“ hjá Musical America og hlaut einnig nýverið Grawemeyer-verðlaunin sem eru ein virtustu tónskáldaverðlaun heims. Einnig hljómar á tónleikunum nýlegt verk sem Daníel Bjarnason samdi fyrir Calder-kvartettinn og hefur hlotið afar góðar viðtökur. 

Tónleikarnir eru liður í LA / Reykjavík hátíð Sinfóníuhljómsveitar Íslands dagana 3. – 12. október og eru haldnir í samstarfi við Kammermúsíkklúbbinn.