Tix.is

Um viðburðinn

Edda II - Líf guðanna - Sinfóníuhljómsveit Íslands
23. mar. » 19:30 Eldborg | Harpa

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Hermann Bäumer

EINSÖNGVARAR
Hanna Dóra Sturludóttir
Elmar Gilbertsson
Kristinn Sigmundsson

KÓR
Schola cantorum

KÓRSTJÓRI
Hörður Áskelsson

EFNISSKRÁ
Jón Leifs Edda II – Líf guðanna

Óratórían Edda er stærsta verk Jóns Leifs og eitt metnaðarfyllsta tónverk íslenskrar tónlistarsögu, risavaxin tónsmíð sem spannar þrjú kvöld, byggð á textum úr Eddukvæðum og Snorra-Eddu og átti að vera eins konar andsvar við Niflungahring Wagners. Segja má að smíði þessa verks hafi verið drjúgur hluti ævistarfs Jóns því hann hóf að leggja drög að Eddu I um 1930 en náði ekki að ljúka þriðju óratóríunni áður en hann lést árið 1968. Fyrsti hluti verksins, Edda I: Sköpun heimsins, var frumfluttur í heild árið 2006 og útgáfa verksins á geisladiski vakti heimsathygli og fékk frábæra dóma. Nú er komið að því að frumflytja annan hluta verksins. Edda II: Líf guðanna segir frá Óðni og sonum hans, ásynjum, valkyrjum og nornum á litríkan og dramatískan hátt.

Það er stórviðburður í íslensku tónlistarlífi að þetta verk, sem Jón Leifs samdi fyrir meira en hálfri öld og var á sínum tíma stærsta verk sem íslenskt tónskáld hafði samið, skuli nú loksins fá að hljóma.

Áskrifendur Sinfóníuhljómsveitar Íslands geta tryggt sér miða á tónleikana sem viðbót við áskriftarraðir sínar á hefðbundnu áskriftarverði.