Tix.is

Um viðburðinn

Föstudagsröðin: Stríð og friður - Sinfóníuhljómsveit Íslands
16. feb. » 18:00 Norðurljós | Harpa

STJÓRNANDI OG KLARÍNETTLEIKARI
Osmo Vänskä

KVARTETT
Sigrún Eðvaldsdóttir fiðla
Þórunn Ósk Marínsdóttir víóla
Bryndís Halla Gylfadóttir selló
Domenico Codispoti píanó

Upphaflega stóð til að Daniel Schmitt og Anna Guðný Guðmundsdóttir léku í kvartettinum en í þeirra stað koma þau Þórunn Ósk Marínósdóttir og Domenico Codispoti.

EFNISSKRÁ

Gideon Klein Tríó fyrir strengi
Olivier Messiaen Þættir úr Kvartett fyrir endalok tímans
Dmítríj Shostakovitsj Sinfónía nr. 6

Á árum heimsstyrjaldarinnar síðari varð til ógrynni tónlistar sem með einum eða öðrum hætti tjáir þær ógnir sem blöstu við. Hér hljóma verk eftir tónskáld frá þremur löndum – Tékklandi, Frakklandi og Sovétríkjunum – sem öll kynntust hildarleiknum á sinn hátt.

Gideon Klein var gyðingaættar og samdi meistaralegt strengjatríó sitt í fangabúðum nasista árið 1944. Níu dögum eftir að hann fullgerði tríóið var hann fluttur í útrýmingarbúðirnar í Auschwitz.

Olivier Messiaen barðist fyrir Frakkland í styrjöldinni og var um skeið stríðsfangi nasista. Í fangabúðunum fékk hann leyfi til að semja tónlist og þar varð til eitt mesta kammerverk 20. aldar, Kvartett fyrir endalok tímans. Hér hljómar meðal annars þáttur verksins fyrir einleiksklarínett, Hyldýpi fuglanna, leikið af Osmo Vänskä sem er frábær klarínettleikari auk þess að vera snillingur með tónsprotann.

Tónleikunum lýkur á sinfóníu nr. 6 eftir Shostakovitsj, sem hann lauk við rétt um það leyti sem heimsstyrjöldin síðari braust út. Þetta er verk sterkra andstæðna, þar sem djúpur tregi og léttari stemningar togast á.

Kynnar eru Oddný Halla Magnúsdóttir og Guðni Tómasson.