Tix.is

Um viðburðinn

Sólarupprás eftir stríðsátök. Prússneskur hermaður hrökklast í dauðateygjunum um sviðna sveit. Ómurinn af þjáningum hans verður eitt með hljómi málaðra himinlitanna. Fjörutíu hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands leika undir einsöng hins deyjandi manns um stríð og hörmungar.

Magnþrungin tónlist tónskáldsins Kjartans Sveinssonar og stórbrotin sviðsmynd listamannsins Ragnars Kjartanssonar fara með áhorfendur fram og aftur í tíma. Það er margt að hugleiða í þessu verki. Jafnframt því að horfa upp á dauðstríð hins þjáða manns verða áhorfendur vitni að annars konar baráttu.

Einn af ástælustu leikurum þjóðarinnar mun leika hermanninn í þessu myndlistarverki.

Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-leikhúsið í Berlín.

Í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands.Sólarupprás eftir stríðsátök. Prússneskur hermaður hrökklast í dauðateygjunum um sviðna sveit. Ómurinn af þjáningum hans verður eitt með hljómi málaðra himinlitanna. Fjörutíu hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands leika undir einsöng hins deyjandi manns um stríð og hörmungar.

Magnþrungin tónlist tónskáldsins Kjartans Sveinssonar og stórbrotin sviðsmynd listamannsins Ragnars Kjartanssonar fara með áhorfendur fram og aftur í tíma. Það er margt að hugleiða í þessu verki. Jafnframt því að horfa upp á dauðstríð hins þjáða manns verða áhorfendur vitni að annars konar baráttu.

Einn af ástælustu leikurum þjóðarinnar mun leika hermanninn í þessu myndlistarverki.

Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-leikhúsið í Berlín.

Í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands.