Tix.is

Um viðburðinn

Sóley Stefánsdóttir er ein af okkar skærustu stjörnum. Hún ólst upp í Hafnarfirði og lék í byrjun aldarinnar með hljómsveitinni Sin Fang. Þegar útgefandi þeirrar sveitar, þýska plötuútgáfan Morr Music, komst á snoðir um lagasmíðar Sóleyjar gerðu þeir tafarlaust plötusamning við hana og í kjölfarið fóru hjólin að snúast á fullri ferð. Sóley hefur síðan gefið út þrjár plötur og leikið á hundruðum tónleika fyrir tugþúsundir áhorfenda um allan heim. Það er gríðarlegur hvalreki að fá Sóley í Havarí og bókað mál að í vændum er mögnuð kvöldstund sem mun ekki láta neinn ósnortinn.