Tix.is

Um viðburðinn

Jónas Sigurðsson er heimalningur í Havarí. Hingað kemur hann annaðhvort til að lifta hamri eða strjúka gítarstrengi, nema hvort tveggja sé. Að þessu sinni hefur hann sett saman Hæglætishátíð í Havarí ásamt vinum sínum Prins Póló, Benna Hemm Hemm og Borko. Hátíðin stendur alla helgina og lýkur með 12 klukkustunda maraþoni sunnudaginn 6. ágúst þar sem öll skynfæri verða þanin til hins ýtrasta. Dagskráin er ennþá í smíðum en eitt er víst að í vændum er magnaður viðburður sem erfitt verður að endurtaka. Ætlar þú að vera meðal þeirra sem missti af Hæglætishátíðinni í Havarí? Ég hélt ekki.