Tix.is

Um viðburðinn

Lay Low heldur tónleika í Havarí föstudaginn 30. júní. Lay Low spratt fram á sjónarsviðið árið 2006 og á augabragði heillaði hún þjóðina upp úr skónum með sínum einstaka sjarma og þroskuðum lagasmíðum. Síðan þá hefur hún fylgt okkur sem einn fremsti blús-, folk- og rokklistamaður þjóðarinnar. Það er gríðarlegur hvalreki að fá Lay Low í Havarí og öruggt mál að áhorfendur eiga magnaða kvöldstund í vændum. Á undan Lay Low mun Katrín frá Núpi stíga á stokk en Katrín er ung og rísandi stjarna af Berufjarðarströnd. Við vekjum athygli á því að daginn eftir, laugardaginn 30. júní, heldur FM Belfast tónleika í Havarí og varla annað í boði en að taka heila helgi í Berufirði!