KK heimsækir Havarí föstudaginn 16. júní. KK þarf ekki að kynna fyrir nokkrum heilvita manni eða konu. Hann er ástsælasi blús og folk listamaður þjóðarinnar og órjúfanlegur hluti af þjóðarsálinni bæði í gegnum tónlist sína og þáttastjórn í útvarpi. Við dýrkum öll KK og gleðjumst ógurlega yfir komu hans austur. KK er einstakur sögumaður og áhorfendur eiga magnaða kvöldstund í vændum. Tryggðu þér miða strax!