Tix.is

Um viðburðinn

DIMMA leikur í Havarí sunnudaginn 4. júní. DIMMA hefur skipað sér í flokk allra vinsælustu hljómsveita landsins á síðustu árum. Sveitin hefur komið fram á hundruðum tónleika út um allt land og gefið út fjölmargar plötur og mynddiska. Tónleikar Dimmu hafa verið sendir út í sjónvarpi og útvarpi og sveitin hefur verið tilnefnd til fjölda verðlauna. DIMMA vann “Flytjandi ársins” á Hlustendaverðlaununum 2016 og hlaut Krókinn – sem er sérstök viðurkenning RÚV fyrir lifandi flutning á árinu 2014.