Tix.is

Um viðburðinn

YOU WANTED THE BEST AND YOU GOT THE NÆSTBEST - MEIK snýr aftur!

KISS heiðurshljómsveitin MEIK blæs til tónleika á Hard Rock Cafe Reykjavík þann 26. maí en þetta verða fyrstu tónleikar MEIK í heil þrjú ár eða frá því MEIK spilaði með fyrrum gítarleikara KISS, Bruce Kulick. Á efnisskránni verða eingöngu lög KISS en allir meðlimir MEIK hafa einhvern tímann á lífsleiðinni verið forfallnir aðdáendur þessarar einstöku rokksveitar.

Meðlimir MEIK, sem Bruce Kulick lýsti í viðtali sem "the most talented group of musicians I have ever played with", koma úr ýmsum áttum og eru m.a. meðlimir í Sálinni hans Jóns míns, Á móti sól, Todmobile, Skálmöld og Dúndurfréttum:

Magni Ásgeirsson - söngur
Þráinn Árni Baldvinsson - gítar
Einar Þór Jóhannsson - gítar
Jón Elvar Hafsteinsson - gítar
Eiður Arnarsson - bassi
Jóhann Hjörleifsson - trommur