Tix.is

Um viðburðinn

Það verður sannkölluð pönkrokkveisla á Hard Rock fimmtudaginn 4. maí þegar hljómsveitirnar Innvortis, Morðingjarnir og Saktmóðigur hækka í botn og telja í sína helstu slagara. Þessar hljómsveitir spila ekki á tónleikum á hverjum degi — og svo sannarlega ekki allar saman. Því væri glapræði að láta sig vanta á þennan sögulega viðburð. Röð hljómsveita verður dregin upp úr hatti. Sú fyrsta á slaginu 21:00 og mun hún hefja leik um mínútu síðar. Reddaðu pössun og láttu sjá þig.

PS: Á einhver hatt til að lána okkur?