Tix.is

Um viðburðinn

Hljómsveitakeppnin Wacken Metal Battle verður haldin 6. maí á tónleikastaðnum Húrra í Reykjavík.

Headliner kvöldsins: AUÐN

Í ár keppa 6 sveitir í úrslitum og mun 14 manna alþjóðleg dómnefnd ásamt áhorfendum velja eina af þeim til þess að spila fyrir Íslands hönd á stærstu þungarokkshátíð heims Wacken Open Air í sumar. Þar spilar hún fyrir mörg þúsund manns og tekur þar með þátt í lokakeppni Wacken Metal Battle ásamt 29 öðrum þjóðum þar sem ansi rausnarleg verðlaun bíða efstu 5 sveitanna.

Sérstakir gestir verða AUÐN sem unnu keppnina hérna heima í fyrra. Það að taka þátt í keppninni opnaði bókstaflega allar hurðar fyrir þeim. Eftir að ná 3. sætinu í lokakeppninni á Wacken 2016, skrifuðu þeir í kjölfarið undir "worldwide" samning við eitt fremsta og virtasta label í þungarokkinu í dag, franska labelið Season of Mist. Við hefur svo tekið hver tónleikabókunin á erlendri grundu á fætur annarri og spiluðu þeir m.a. á virtasta metalfestivali Noregs páskahelgina 2016, Inferno Festival. Helgina þar á eftir spiluðu þeir á virtustu hátíðinni í Hollandi, Roadburn Festival og svo var þeim einnig boðið að spila fyrir dansi á lítilli hátíð í Danmörku sem heitir Roskilde Festival nú í sumar. Sannarlega allt á blússandi siglingu hjá þeim. Mun Auðn spila sams konar sett og bandið spilaði á Inferno og Roadburn og gefa þannig áhorfendum hér tækifæri á að upplifa þá stemningu sem þeir hafa verið að skapa á erlendri grundu upp á síðkastið.

Hljómsveitin Narthraal, sem tók þátt í keppninni 2015, spila einnig sem gestasveit og munu opna kvöldið. Afar hressandi old school dauðarokksband sem hefur verið að gera það mjög gott upp á síðkastið og skrifaði nýverið undir útgáfusamning við finnska labelið Inverse Records. Mun fyrsta breiðskífa bandsins, Screaming From The Grave, líta dagsins ljós á þeirra vegum í lok maí.

Húsið opnar kl. 19.00 - Byrjar 19:30

Eftirtaldar sveitir taka þátt í Wacken Metal Battle í ár, í stafrófsröð:
CULT OF LILITH
CXVIII
FUTURE FIGMENT
LUCY IN BLUE
NEXION
UNE MISÈRE

Ásamt dómnefnd hafa áhorfendur einnig atkvæðisrétt þannig að það er um að gera að mæta snemma og styðja sína sveit en atkvæðaseðlar verða afhentir við inngang. Fyrir þá sem ekki komast á keppnina en vilja mæta síðar og ná Auðn að þá munu þeir stíga á svið hálf tólf og loka kvöldinu.

Nánari upplýsingar á Wacken Metal Battle Iceland og Metal Battle

Facebook Event

Youtube

Athugið að það er takmarkað magn miða á þennan viðburð og miðarnir seljast hratt.

Styrktaraðilar keppninnar eru: Rás 2 og einnig Hljóðfærahúsið, Tónastöðin, Studio Emissary, Studio Hljóðverk, Studio Fossland, Merkismenn og Smekkleysa plötubúð, sem gefa vinninga í keppninni hérna heima.