Tix.is

Um viðburðinn

Írska tónlistarkonan Lisa Hannigan mun halda tónleika í Gamla Bíói sunnudaginn 30. júlí.

Lisa er ekki ókunnug íslendingum, en hún hefur þrisvar komið fram með tónlistarmanninum Damien Rice hér á landi. Í fyrra gaf hún út sína þriðju sólóplötu, At Sea, í samstarfi við upptökustjórann Aaron Dessner og hefur rödd Lisu og platan fengið frábæra dóma.