Tix.is

Um viðburðinn

Samaris sameinar ólíka tónlistarheima með rafpoppi Þórs Kára, klarinettleik Áslaugar Rúnar og undraverðum, öruggum og hljómþýðum söng Jófríðar Ákadóttur. Samaris vann öruggan sigur Músíktilrauna árið 2011 fyrir þroskaðan hljóm sem er dulúðlegur og framandi en jafnframt persónulegur. Síðustu ár hafa þau spilað úti um allan heim og segja þau ferðalögin hafa aukið skilning sinn á sambandi sínu við tónlist og hvert annað.

Á annarri plötu sinni, Black Lights, spila þau úr ævintýrum síðustu ára en platan sú var valin plata ársins á íslensku tónlistarverðlaununum 2016 auk þess sem Jófríður var valin söngkona ársins. Samaris er á internetinu, tékkaðu á þeim.