Tix.is

Um viðburðinn

Prins Póló rífur sig upp frá bústörfunum næstu helgi til að leika á tónleikum á Græna Hattinum. Prinsinn dýrkar að leika fyrir norðan og hann ætlar að taka Árna Rúnar úr Fm Belfast með sér til halds og trausts. Tónleikarnir bera að með stuttum fyrirvara þannig að nú er ekkert annað að gera en að tryggja sér miða og smala vinum og vandamönnum á Græna Hattinn föstudagskvöldið 3. mars.