Tix.is

Um viðburðinn

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna mun hljómsveitin Fleet Foxes aðeins koma fram á einum tónleikum á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni í ár. Fyrirhuguðum tónleikum þann 3. nóvember hefur verið aflýst. Miðar sem nú þegar hafa verið seldir á þessa tónleika gilda á tónleikana 4. nóvember. Þeir miðahafar sem ekki geta nýtt sér miða á þá tónleika geta fengið endurgreiðslu með því að snúa sér til miðasölu Hörpu.  


Afhending miða á Fleet Foxes tónleikana til Iceland Airwaves miðahafa mun fara fram eins og áður var auglýst í Media Center hátíðarinnar í Hörpu laugardaginn 4. nóvember kl. 15.