Tix.is

Um viðburðinn

The Royal Wind Band Schelle lúðrasveitin er ein fremsta lúðrasveit Belgíu en tónleikarnir í Hörpu eru liður í Evróputúr sveitarinnar.

Á tónleikunum hljómar tónlist af ýmsum toga, verk eftir belgísk tónskáld, en einnig tónlist úr kvikmyndum og söngleikjum.

Hljómsveitin, sem hefur átt velgengni að fagna undir forystu stjórnandans Dirk De Caluwé og unnið til fjölda verðlauna, hlakkar til að fá að taka á móti íslenskum tónleikagestum og lofar ógleymanlegri kvöldstund.