Tix.is

Um viðburðinn

Góðverkin kalla

Freyvangsleikhúsið setur á svið gamanleikritið Góðverkin kalla eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason úr Ljótu hálfvitunum. Leikstjórar eru Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelson, sem sjálfur er Ljótur hálfviti í hjáverkum. Tónlistarstjóri er Jóhann Axel Ingólfsson.

Í smábænum Gjaldeyri á Ystunöf starfa ofvirk góðgerðarfélög, Dívans klúbburinn, Lóðarís og Kvenfélagið Sverðliljurnar, sem fyllt hafa sjúkrahús bæjarins með stanslausum tækjagjöfum, lækninum til mikillar armæðu. Góðgerðarkapphlaupið stigmagnast og nær hámarki á 100 ára afmæli sjúkrahússins.

Rómantísk, stórundarleg, en umfram allt bráðfyndin atburðarrás með söngvum sem eru mátulega vel frambornir af góðgerðarfélögunum þremur.