Tix.is

Um viðburðinn

Veglegir tónleikar með mörgum af okkar þekktustu listamönnum. Meðal þeirra sem þar koma fram eru Jón Jónsson, Pál Óskar Hjálmtýsson, Stefán Hilmarsson, Eyþór Ingi, María Ólafsdóttir, Friðrik Dór, Jóhanna Guðrún, Haukur Heiðar og Ragnar Bjarnason. Húshljómsveitina skipa: Gunnar Leó Pálsson - trommur, Helgi Reynir Jónsson - gítar, Valdimar Kristjónsson - píanó, Baldur Kristjánsson - bassi og Þórður Gunnar Þorvaldsson - hljómborð og slagverk.

Forseti Íslands Hr. Guðni Th. Jóhannesson flytur stutta tölu í upphafi tónleikanna og kynnar verða þær Eva Ruza og Sigurdís. Við skorum á fyrirtæki að hafa samband við miðasölu Hörpu í síma 5285050 eða á midasala@harpa.is og skoða sérstaka styrktarpakka sem þeim stendur til boða Hugmyndin að tónleikunum vaknaði hjá skipuleggjanda þeirra Sigurdísi sem langaði að leggja björgunarsveitunum lið en mikið álag hefur verið að sjálfboðaliðum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á síðustu vikum og mánuðum. Sjálfboðaliðar Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa þurft að takast á við mörg umfangsmikil og flókin verkefni á sviði leitar og björgunar að undanförnu en starf björgunarsveitanna er fjármagnað með frjálsum framlögum og stuðningi einstaklinga og fyrirtækja. Allir sem að tónleikunum koma gefa vinnu sína.